Vá! Aldrei fá lánaða skó hjá
einhvejum í von um að þeir séu e-ð skárri en þínir eigin.. það
er sko algjör miskilningur eða allavegana í mínu tilfelli! Málið
var nefnilega það að ég var að byrja að vinna í morgun á voða
fínu radison sas royal hóteli sem liggur við Vestebrogade og ég
fékk lánaða skóna hjá yfirmanninum mínum því ég hélt að mínir
eigin skór væru alveg ómögulegir og ég kem aldrei til með að
bjóða þess bætur :/ nee.. en allavegana voru þeir bara vondir og
ég kunni ekki við að vera með e-ð vesen þannig að ég pommsaðist
um í þeim og kem líklegast bara til með að vera með feitar
blöðrur á morgun.
Vinnan var bara alveg mjög fín og á
ég að mæta aftur í fyramálið kl 6 sem þýðir að ég má ekki vakna
mikið seinna en fimm í nótt því það tekur ca hálftíma að hjóla
niðrí bæ sem er bara gott því þá fær maður svolitla holla hreyfingu
yfir daginn 
En eftir vinnu í dag þá fórum við
Guðni með Unni, Svanhildi, Davíð Adams og Hallfríði í Cristianiu að
skoða og þar var allt fullt af lögguköllum og þeir voru í
hlíðargalla með hjálma á hausnum og alles... Greinilega mikið um að
vera en við föttuðum ekki nákvæmlega hvort þeir væru bara þarna til
að leita að einhverjum glæponi eða að passa að ekkert yrði selt af
dópi en það getur varla verið því okkur var nú boðið á þessum ca
30-40 mín sem við vorum þarna inni hass og þarna var fólk að reykja
þokkalega sverar jónur.
Það er mjög skondin sölutækni þarna,
þeir rangla svona í hringi með hausinn undir sig einhvernveginn og
hvísla einhvernveginn –hazzh-, -hazzh- en það var held ég enginn
var við það nema ég og Guðni, við hljótum bara að vera svona
voðalega sjóuð í þessu en við létum það nú alveg eiga sig í þetta
skiptið að eiga við þennan blessaða mann viðskipti.
Þessa stundina er ég semsagt í
tölvunni á meðan Guðni fór í einhverskonar busapartý hjá einhverjum
strák sem hann var að kynnast í skólanum, ég hef annars ekki mikið
að segja þessa stundina nema er að hugsa um að fara halla mér svo
ég hafi einhverja orku í vinnuna á morgun
Kveð að sinni,
Gogga 